Ertu tilbúin að sleppa tökunum á gamla vítahringnum og finna nýja leið?

Fyrir konur sem vilja komast úr gamla mynstrinu og skapa nýtt jafnvægi á 21 dögum

Námskeiðið hófst 15.september

En þú getur hafið þín vegferð hvenær sem er

Kannski þekkirðu þetta

Þú vaknar þreytt, drekkur fyrsta kaffibollann áður en þú hugsar um morgunmat.

Dagurinn líður og áður en þú veist af ertu komin með sykurþörf eða löngun í eitthvað fljótlegt, og þú hugsar:

"Ég byrja bara aftur á mánudaginn..."

En hvað ef þú gætir byrjað í dag með litlum, einföldum skrefum sem gefa þér orku, meiri stjórn og trú á að þú getir breytt?

21 dagar til að byggja upp nýjan grunn

Í þrjár vikur færðu leiðsögn sem hjálpar þér að:

  • Fá meiri orku með litlum breytingum sem gefa þér árangur

  • Ná jafnvægi í kringum mat án þess að fórna öllu sem þú elskar

  • Byggja upp nýjar venjur sem verða þinn nýji lífsstíll

Uppsetning námskeiðs

Orka og næring

Hugarfar og stjórn á löngunum

Hreyfing og vani

Lærðu hvernig litlar breytingar hafa stór áhrif og umbreytt orkunni þinni.

Þróaðu með þér nýtt hugarfar sem styður við markmið þín og lærðu að halda jafnvæginu þegar freistingar banka á dyrnar.

Smá dagleg hreyfing og litlar ákvarðanir sem festa nýjar venjur í sessi.

Uppsetning námskeiðs

Orka og næring

Lærðu hvernig litlar breytingar hafa stór áhrif og umbreytt orkunni þinni.

Hugarfar og stjórn á löngunum

Þróaðu með þér nýtt hugarfar sem styður við markmið þín og lærðu að halda jafnvæginu þegar freistingar banka á dyrnar.

Hreyfing og vani

Smá dagleg hreyfing og litlar ákvarðanir sem festa nýjar venjur í sessi.

Um mig

Ég heiti Hrund og starfa sem næringarfræðingur.

Ég hef hjálpað konum að brjóta upp vítahring óstöðugra matarvenja, orkuleysis og stöðugrar sjálfsgagnrýni.


Ég veit hvernig það er að vera föst í endalausu “byrja á mánudegi” hugarfari, ég hef sjálf gengið í gegnum það.

Í stað þess að einblína á öfgar eða tímabundnar lausnir, kenni ég þér einföld, hagnýt skref sem þú getur byrjað á strax.


Í þessu 21 daga námskeiði leggjum við grunninn að nýjum venjum sem gefa þér meiri orku, léttari líkama og traust til að halda áfram, án þess að fórna gleðinni í kringum mat og lífið sjálft.

Ég byrjaði sjálf á litlum skrefum og það gerði alla gæfumuninn. Nú ætla ég að hjálpa þér að gera það sama.

Hvað er innifalið í námskeiðinu?

Aðgangur að öllu efni í 6 mánuði

þannig að þú getur farið í gegnum efnið á þínum hraða

Nýtt efni opnast vikulega í 3 vikur
hver vika hefur sitt þema svo að þú byggir upp grunn skref fyrir skref.

Stutt og hnitmiðuð myndbönd
engin óþarfa umræða, bara beint í aðgerðirnar sem virka.

Prentanleg verkefnablöð

til að halda þér á réttri brauð og auðvelda framkvæmd.

Ráðleggingar sem byggja á næringarfræði og raunverulegum venjum

engar öfgar, bara árangur sem endist.

Verð

Hægt er að greiða með debet/kreditkorti í gegnum örugga greiðslusíðu.

Fullt verð

14.997 kr.

Algengar spurningar

Hvenær byrjar og endar námskeiðið?

Námskeiðið hófst 15.september og stendur yfir í 3 vikur þar sem þú færð nýtt efni í hendurnar hvern mánudag. En þú getur byrjað hvenær sem þér hentar best og unnið á þínum hraða.

Hversu lengi hef ég aðgang að efninu?

Þú hefur aðgang að öllu efni námskeiðsins í 6 mánuði eftir að það hefst, þannig að þú getur farið yfir efnið aftur ef þú vilt styrkja nýjar venjur enn frekar.

Er þetta megrunarkúr?

Nei, alls ekki. Þetta námskeið byggir á heilbrigðri nálgun án öfga. Við vinnum með jafnvægi, orku og tengingu við líkamann þinn.

Fæ ég persónulega aðstoð?

Nei, þetta er námskeið án lifandi leiðsagnar.

Hvernig virkar skráningin?

Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslusíðu og þú færð staðfestingu í tölvupósti með öllum upplýsingum.

3 vikna ferðalag

Þetta er ekki "allt eða ekkert" nálgun.

Þetta er raunhæf og hvetjandi leið til að finna fyrir árangri á aðeins þremur vikum og leggja grunn að meiri breytingum í framtíðinni.

Þetta er fyrir þig ef þú vilt byrja strax, án þess að skuldbinda þig í langt hópnámskeið en samt fá árangur sem þú finnur fyrir innan þriggja vikna.

Vertu með í 21 dag til að byggja upp nýjan grunn

14.997 kr.

©Höfundaréttur 2025 Hrund Valgeirsdóttir

Næring & Ráðgjöf

Allur réttur áskilinn