Við byrjum eftir:

Ertu þreytt á að "taka þig á" í mataræðinu aftur og aftur... og enda alltaf á sama stað?

Þig langar að líða léttari í líkamanum, hafa meiri orku og finna jafnvægi í kringum mat, en í hvert skipti sem þú byrjar endar það á sama stað eftir nokkrar vikur.

Þú kannt alveg að byrja. Það er ekki vandinn.

Þig vantar bara aðferð sem endist, þegar eldmóðurinn dofnar.

Ókeypis fræðslukvöldið Aldrei aftur á byrjunarreit er fyrir konur sem vilja skilja af hverju árangurinn endist aldrei... og hvað þær geta gert öðruvísi í þetta sinn.

Þetta er fyrir þig ef þú...

  • Hefur reynt margar leiðir en endar alltaf á sama stað full af vonbrigðum og sjálfsásökunum

  • Ert komin með nóg af samviskubiti í kringum mat

  • Veist alveg hvað þú átt að gera, en það gengur samt ekki

  • Vilt ná árangri með mildi og stuðningi, ekki enn einu átaki

Hvað fræðslukvöldið gefur þér:

  • Skilning á af hverju heilsubreytingar halda sjaldan til lengdar svo þú hættir að kenna sjálfri þér og lélegum viljastyrk um

  • Nýtt sjónarhorn á bakslag svo kökusneið eða erfiður dagur þurfi ekki lengur að enda í "ég byrja bara á mánudaginn"

  • Skýra mynd af því hvar þú dettur venjulega út svo þú sjáir nákvæmlega hvað hefur verið að stoppa þig, aftur og aftur

  • Leið til að velja næstu máltíð, ekki næsta mánudag svo þú getir haldið áfram líka þegar dagurinn er ekki fullkominn

Þetta er rými til að staldra við, skilja hvað hefur verið að stoppa þig.

 

Þú ferð út með nýtt sjónarhorn og raunverulega tilfinningu fyrir því að breyting sé möguleg.

Nánari upplýsingar:

📅 Hvenær: 1.september 2026 (þriðjudagur)
🕔
Tími: kl. 20:00
💻
Staður: Zoom (webinar)

Á fræðslukvöldinu

Við skoðum af hverju árangurinn stoppar alltaf á sama stað, hvað gerist í raun og veru þegar þú "dettur út" og hvernig þú byggir framhald, en ekki enn eina byrjunina.

Þú ferð út með skýr næstu skref inn í haustið og meiri trú á að þú getir haldið áfram.

Hver leiðir fræðslukvöldið?

Ég heiti Hrund, er næringarfræðingur og vinn með konum sem eru orðnar þreyttar á að byrja aftur og aftur, konum sem vilja líða betur í líkamanum án öfga, án sektarkenndar og án þess að berjast við sjálfar sig.

 

Í starfi mínu hef ég séð eitt aftur og aftur:

Það er ekki skortur á vilja eða metnaði sem heldur konum föstum. Það er skortur á raunhæfum ramma, og stuðningi sem passar inn í lífið eins og það er.

Ég vinn ekki með megrun, „allt eða ekkert“ hugsun eða lausnir sem endast í nokkrar vikur.

Ég vinn með innri skýrleika, einföld skref og ferli sem hægt er að halda áfram með, líka þegar lífið er ekki fullkomið.

 

Ég skapaði þetta fræðslukvöld til að sýna þér hvað skilur á milli þess að byrja og þess að halda áfram.

Þú þarft ekki að gera þetta ein.

Ég held utan um ferlið, og þú mætir eins og þú ert.

Ertu tilbúin að hætta að byrja upp á nýtt og læra loksins framhaldið?

Þú mætir haustinu með meiri ró, skýrleika og sjálfstraust í kringum mat og sjálfa þig.

Með því að mæta á fræðslukvöldið velurðu framhald fram yfir enn eina byrjunina og mildi fram yfir hörku.

Gefðu þér þetta kvöld, bara fyrir þig.

Sjáumst á Zoom!

Með því að skrá þig, samþykkirðu að fá tölvupósta frá okkur. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

©Höfundaréttur 2026 Hrund Valgeirsdóttir

Næring & Ráðgjöf slf.

Allur réttur áskilinn