Ertu þreytt á því að byrja aftur og aftur uppá nýtt og enda alltaf á sama stað?
Þú hefur reynt allt: matarkúra, viljastyrk, ný áramótaheit.
En samt ertu uppgefin, föst á sama stað og kennir sjálfri þér um.
En þetta er ekki þér að kenna og það er ekki of seint að gera hlutina öðruvísi.
Komdu með mér í 3 daga ókeypis leiðsögn sem er hjálpar þér að komast loksins út úr vítahringnum og byrja að léttast.
Nýtt sjónarhorn á hvers vegna þetta hefur verið svona erfitt
og hvers vegna það er ekki þér að kenna
Einföld og framkvæmanleg aðferð til að öðlast betra öryggi í kringum mat
jafnvel þegar það er mikið að gera
Leið til að tengjast konunni sem þú vilt verða
án þess að finna fyrir sjálfsgagnrýni
Trú á að breytingin sé möguleg
jafnvel þó þér hafi ekki gengið vel áður
Komdu með í 3 daga ókeypis leiðsögn þar sem þú færð hvatningu, skýra stefnu og fyrstu skrefin að léttari líkama og sterkari sjálfsmynd:
📅 Hvenær: 26.-28. ágúst, 2025
🕔 Tímasetning: kl. 17:00 - 18:00
💻 Hvar: Zoom
🎁 Bónus: Gjöf ef þú mætir "í beinni" alla dagana
Eru þreyttar að finna fyrir orkuleysi og draga sig áfram í gegnum daginn
Finna að líkaminn er ekki að vinna með þeim og langar að léttast án þess að fórna öllu öðru
Vilja ná árangri með stuðningi, sjálfsstyrkingu og nýjum venjum sem endast
Hafa reynt aftur og aftur að breyta en fundið sig alltaf á sama stað fullar af vonbrigðum og sjálfsásökunum
Langar að líða vel í eigin skinni, ekki bara líta vel út, heldur vera með sjálfsvirðingu og ró í kringum mat
Eru tilbúnar að taka heilsuna í eigin hendur og byrja fyrir alvöru
Ég er næringarfræðingur sem brennur fyrir því að styðja konur við að finna jafnvægi í kringum mat og styrkja trú á eigin getu.
Ég veit sjálf af eigin reynslu hversu erfitt það getur verið að festast í vítahring, þar sem fyrsta skrefið í átt að breytingu reynist oft það erfiðasta.
Í dag hjálpa ég konum að ná stjórn, skapa heilbrigðari tengsl við mat og byggja upp lífstíl sem endist. Ég veit að varanlegar breytingar gerast ekki með megrunarkúrum eða hörku, heldur með stuðningi, einföldum skrefum og innri umbreytingu.
Þú þarft ekki að gera þetta ein. Komdu með mér í þessa nýju byrjun.
Ertu tilbúin að taka fyrstu skrefin að léttari líkama?
Fáðu það sem þú þarfnast til að byrja að léttast og finna jafnvægi í kringum mat
Kynning á hvernig þú getur lést á heilbrigðan hátt
Þú færð gjöf frá mér ef þú mætir "í beinni" á Zoom
Lokaður Facebook hópur þar sem þú getur tengst og deilt
Upptökur verða aðgengilegar í nokkra daga
©Höfundaréttur 2025 Hrund Valgeirsdóttir
Næring & Ráðgjöf
Allur réttur áskilinn