Ókeypis jóladagatal fyrir líkama og sál, 24 dagar í lokuðum Facebook hópi fyrir konur
Desember byrjar vel, en svo taka jólahlaðborðin í vinnunni, konfektið á kaffistofunni og smákökurnar heima smám saman yfir. Þú nærð ekki að hreyfa þig eins og þú ætlaðir þér, og á kvöldin ertu orðin þreytt og ferð beint í konfektkassann.
Svo hugsarðu: „Ég byrja bara upp á nýtt í janúar.“
Það er fullkomlega skiljanlegt, því desember er oft kröfuríkasti mánuður ársins og þá er auðvelt að setja sjálfa sig til hliðar þangað til hátíðirnar eru búnar.
Þess vegna langar mig að bjóða þér að hafa þennan desember öðruvísi. Þú þarft ekki að sleppa jólunum til að hugsa um þig.
Komdu með mér í ókeypis 24 daga jólaáskorun sem gefur þér einföld skref til að næra þig, hreyfa þig og líða betur alla leið fram að nýju ári.
Á hverjum degi frá 1. til 24. desember opnast ný færsla í hópnum með:
Áskoranirnar snúast um mat, hreyfingu og líðan, og þú gerir þær á þínum hraða. Þær eru litlar, en þær geta haft mikil áhrif á það hvernig þú mætir jólunum og nýju ári.
Þetta er ekki keppni og þú þarft ekki að gera allt fullkomlega. Þetta er stund á hverjum degi sem þú tekur frá fyrir sjálfa þig.
Þú ert ekki ein í þessu. Í hópnum hittirðu aðrar konur sem vilja líka hugsa betur um sig í desember og njóta jólamánaðarins án þess að keyra sig út.
Þar geturðu deilt upplifun þinni, spurt spurninga og fengið hvatningu frá mér og hópnum á hverjum degi. Við fögnum litlum sigrum og hvetjum hver aðra áfram.
Hvort sem þú gerir hverja einustu áskorun eða velur þær sem henta þér, þá ertu að velja þig á hverjum degi.
Ég hef alltaf verið í vandræðum með að léttast síðustu 30 ár og því varð ég mjög hissa þegar ég steig af forvitni einni saman á vigtina og hafði lést um 2 kg, og það í desember. Þetta finnst mér segja að ég sé búin að hafa einhverja stjórn á matarmagni og sælgætisáti og líka verið duglegri að hreyfa mig. … Þetta skilar árangri og ekkert stress í kringum þetta.
Betri meðvitund, minna samviskubit og halda áfram þó manni verði eitthvað á.
Hætta að dæma sig alltaf. Gera sitt besta og vera meðvituð.
Meiri meðvitund og mildi. Takk fyrir þessa gjöf.
Þá veistu hvernig þetta virkar. Komdu aftur og taktu vinkonu með þér, því það er skemmtilegra að gera þetta saman.
Ég er næringarfræðingur og styð konur við að finna jafnvægi í kringum mat, án kúra og banna.
Ég þekki líka sjálf hvernig desember getur verið. Í mörg ár fann ég fyrir sektarkennd og ójafnvægi í þessum mánuði, þangað til ég lærði að nálgast hann með meiri mildi og raunhæfari væntingum. Ég léttist sjálf um 40 kg á 4 árum með litlum, sjálfbærum breytingum, svo ég veit hvernig það er að byrja aftur og aftur.
Þess vegna bjó ég til þetta dagatal, svo þú getir farið í gegnum jólamánuðinn með meiri orku og ró, á þínum eigin forsendum.
Þú þarft ekki að bíða eftir janúar til að byrja að hugsa um þig. Lítil skref á hverjum degi í desember geta skipt miklu máli fyrir það hvernig þér líður þegar nýtt ár gengur í garð.
Skráðu þig í Heilbrigðari desember og leyfðu mér að leiða þig í gegnum jólamánuðinn, einn dag í einu.
Dagatalið hefst þriðjudaginn 1. desember 2026. Skráningu lýkur mánudaginn 30. nóvember.
©Höfundaréttur 2026 Hrund Valgeirsdóttir
Næring & Ráðgjöf
Allur réttur áskilinn