31.maí - 23. ágúst
12 þema vikur
Ný áskorun vikulega
Lokað samfélag


Meiri orka
Þú mætir deginum í stað þess að lifa hann af. Orkan sem þú hélst að væri löngu farin kemur til baka, hægt og bítandi.

Léttari líðan
Betri melting, skýrari hugur, betri svefn. Þú finnur að þú ert að koma heim í sjálfa þig.

Heilbrigt samband við mat
Þú hættir að telja, banna og dæma. Maturinn verður aftur hluti af lífinu, ekki verkefni sem þú þarft að stjórna.

Venjur sem endast
Þegar sumrinu lýkur ertu ekki aftur á byrjunarreit. Venjurnar eru orðnar hluti af þér, ekki eitthvað sem þú þarft að muna á hverjum degi.

Þú ert ekki ein
Þú ert hluti af hópi kvenna sem skilja nákvæmlega hvað þú ert að ganga í gegnum. Og ég er með þér alla leið.

Sjálfstraust í matarvenjum
Þú treystir sjálfri þér í matarvenjum í fyrsta skipti í langan tíma. Engar reglur, engin gagnrýni. Bara þú og þínar ákvarðanir.

Sunnudagur
Ný þema vikar opnar. Þú horfir á kennsluefnið og undirbýrð þig fyrir áskorun næstu viku
Mánudagur - Sunnudagur
Þú framkvæmir áskorunina í daglegu lífi
Helgin
Vikuleg innritun. Þú fyllir út hvernig áskorun vikunnar gekk.
Mánaðarlegir fundir
Upphafsfundur 1.júní og þrír stöðufundir yfir sumarið

12 þema vikur með kennsluefni
Vikulegt fræðsluefni sem útskýrir aðferðina á bak við hverja áskorun svo þú skiljir hvers vegna hún virkar og getir tekið ákvarðanir sjálf löngu eftir að sumrinu lýkur.

Vikuleg áskorun sem þú framkvæmir
Ein einföld breyting í hverri viku svo þú getir einbeitt þér að einu í einu, án þess að verða yfirbuguð. Þannig festast venjurnar raunverulega.

Styðjandi og lokað samfélag
Traustur hópur kvenna sem eru að ganga í gegnum það sama og þú svo þú þurfir ekki að standa ein í þessu, heldur finnir þig hluta af samfélagi sem skilur þig.

Vikuleg innritun
Þrjár stuttar spurningar í lok hverrar viku svo þú fáir vikulegt aðhald sem heldur þér á sporinu, líka þegar dagarnir eru erfiðir.

Mánaðarlegir stöðufundir á Zoom
Fjórir Zoom fundir yfir sumarið svo þú fáir ekki aðeins fræðilegan stuðning heldur líka persónulegan. Ég er með þér, ekki bara kennsluefnið.
Fundirnir eru á mánudögum kl. 20 á fjögurra vikna fresti: 1.júní (upphafsfundur), 29.júní, 27.júlí og 24.ágúst (lokafundur).

Aðgangur að öllu efni og upptökum af stöðufundum á lokuðu samfélagi
svo þú getir skoðað á þeim tíma sem hentar þér best, jafnvel þegar sumarfrí eða ferðalög grípa inn í.
Skráningu lýkur 30.maí
24.900 kr.
12 þema-vikur með kennsluefni og áskorunum
Lokað og öruggt samfélag allt sumarið (31.maí - 23.ágúst)
Mánaðarlegir stöðufundir á Zoom
Vikuleg innritun og persónulegur stuðningur
Kennsluefnið sem kemur inn á sunnudögum tekur í kringum 15 mínútur, og svo fer áskorunin inn í venjulegt líf.
Nei, Sumar í jafnvægi er ekki kúr. Það er meiri áhersla á að þú lærir að hlusta á eigin líkama, þróir með þér heilbrigð og sjálfbær mynstur í kringum mat og næringu, án þess að þurfa að vera með strangt utanumhald.
Fundirnir eru á mánudögum kl. 20 á fjögurra vikna fresti: 1.júní (upphafsfundur), 29.júní, 27.júlí og 24.ágúst (lokafundur).
Ef þú kemst ekki, þá geturðu alltaf horft á upptökuna.
Það er engin hindrun. Margir verða alltaf í burtu á einhverjum tíma. Efnið er inni á lokuðu vefsvæði og þú getur farið í það þegar þér hentar. Vikulegu þemun eru hönnuð til að passa inn í raunverulegt sumarlíf : ferðalög, grillveislur og allt.
Ég skil það því ég var þar sjálf. Munurinn er aðferðin: ein venja í einu, yfir 12 vikur, með stuðningi og fræðslu. Ekki 10 reglur á einum degi. Það er ástæðan fyrir því að venjurnar festast og endast áfram eftir námskeiðið.
Já! Flest stéttarfélög niðurgreiða þátttöku. Hafðu samband við þitt félag og sendu kvittunina sem þú færð eftir skráningu.
Það er ein greiðsla við skráningu, í gegnum MyPOS eða bankamillifærsla. Ef þú vilt greiða með millifærslu, hafðu þá samband í gegnum [email protected] og við leysum úr því.
Námskeiðið stendur yfir 31.maí-23.ágúst 2026
©Höfundaréttur 2026 Hrund Valgeirsdóttir
Næring & Ráðgjöf slf.
Allur réttur áskilinn