
Kannski ertu meðvituð/meðvitaður um hvenær sykurlöngun kemur upp hjá þér, en ert ekki með neitt raunhæft plan sem hjálpar þér að taka stjórn.
Ef þú finnur þig oft leita í sætindi þegar þú ert undir álagi…
Eða þér finnst þú alltaf þurfa að enda máltíðir á súkkulaði…
Eða þú átt það til að fá þér eitthvað sætt yfir sjónvarpinu á kvöldin oftar en þú myndir vilja…
Þá er ég með handbók sem hentar þér:
Dagplanið sem vinnur gegn sykurlöngun

Einnig fylgir myndband þar sem ég fer með þér í gegnum handbókina, útskýri kaflana og sýni hvernig þú getur byrjað strax.
Hvernig þú kemur auga á hvenær sykurlöngun læðist að
Hvernig dagplanið þitt getur haldið blóðsykri í jafnvægi allan daginn
Hvernig þú skipuleggur einfaldar máltíðir og millimál
Hvernig þú býrð til þitt eigið plan sem virkar í þínu lífi

Handbók sem þú getur prentað út
Innsýn í af hverju sykurlöngun kviknar á ákveðnum tímum dags með dæmum og skýringum
Tvö raunhæf matarplön með skýringum
Skráningarform fyrir 3 daga til að skrásetja matarvenjur og tilfinningar með dæmum til að auðvelda þér að byrja
Myndband með kennslu og hvatningu, svo þú nýtir handbókina sem best
Stutt sjálfsmat til að skilja eigin sykurlöngun
Fyllanlegt form og leiðbeiningar til að búa til þitt eigið dagplan
Hugrænt verkefni sem hjálpar þér að taka stjórn í stað þess að detta í gamlar venjur
"Hrund þekkir efnið vel og hefur góðan skilning á vandamálinu. Gefur góð ráð og er hvetjandi."
- Edda
„Ég minkaði til muna sætindi og það gekk betur en ég þorði að vona.“"
- Jóhanna
"Mæli með, svo mikill fróðleikur og skynsamleg, raunhæf ráð"
- Guðrún
Þú finnur oft fyrir sykurlöngun á sama tíma dags
Þú ert orðin(n) þreytt(ur) á að tapa fyrir sykurlöngun aftur og aftur
Þú vilt hafa meiri stjórn á deginum þínum
Þú ert tilbúin(n) að gera raunverulega breytingu með einföldum hætti

Ég hef verið í þessum sporum sjálf, þar sem sykur og næringarsnauður matur voru mín leið til að dreifa huganum, róa tilfinningar eða verðlauna mig. Ég veit af eigin reynslu hversu sterkar þessar hvatir geta verið og hversu erfitt það getur verið að breyta vananum. En ég hef lært að næra mig á heilbrigðari hátt og í dag upplifi ég mikinn létti að vera laus við sífelldar hugsanir um næsta sykurskammt.
Þess vegna brenn ég fyrir því að hjálpa öðrum konum að ná þessum áfanga, að finna frelsið sem felst í því að vera ekki lengur föst í sykurlöngun, heldur eiga meiri orku, hugarró og fókus fyrir það sem skiptir þær raunverulega máli í lífinu.
©Höfundaréttur 2025 Hrund Valgeirsdóttir
Næring & Ráðgjöf
Allur réttur áskilinn