

Yfir 50 konur hafa lokið Þínu nýja upphafi. Þær hafa upplifað bæði sýnilegar og ósýnilegar breytingar, ekki með kúrum eða pressu, heldur með jafnvægi, sjálfsmildi og stöðugum litlum skrefum. Margar konur finna ekki bara fyrir breytingum á vigtinni, heldur einnig meiri orku, minni sveiflur í svengd og betra samband við mat.
„Ég er öll léttari, hef jafna orku og liðverkir eru horfnir.“
„Ég léttist um 5 kg og finn að vökvasöfnun er minni.“
„3 kg farin, sykurlöngun minni og hreyfingin jókst aftur.“
„Ég hef lést um 6 kg og misst 8 cm víðs vegar um líkamann. Ég er ánægðari með mig og finnst ég hafa betri stjórn á lífinu.“
Þyngdartap oftast frá 2-6 kg á 8 vikum
Minni bjúgur og bólgur, minni vökvasöfnun
Fötin orðin víðari
Margar buxur orðnar of stórar
Betri niðurstöður úr blóðprufum (ein hafði ekki mælst svona góð í 8 ár)
Jafnari blóðsykur
„Ég finn meiri ró í líkamanum og hausinn er í meiri jafnvægi.“
„Ég er orkumeiri, sef betur og hef minni pressu gagnvart matnum.“
Meiri orka og stöðugleiki yfir daginn
Minni sykur- og snakkþörf
Betri svefn og rólegra taugakerfi
Minni bólgur, léttari líðan og betri melting
Meiri ró, sjálfstraust og ánægja með eigin líkama
Jafnari orka yfir daginn og meiri einbeiting
Meðvitaðar ákvarðanir í kringum mat og rútínu
Betra skipulag og meiri trú á eigin getu
Léttast á heilbrigðan hátt, án öfga og megrunarkúra
Finna jafnvægi í kringum mat og þurfa ekki lengur að byrja upp á nýtt á hverjum mánudegi
Byggja upp sjálfstraust og trú á eigin getu, bæði í líkama og huga
Upplifa meiri orku í daglegu lífi og fengið aftur löngun til að hreyfa þig og hlúa að þér


12 vikur af leiðsögn með næringarfræðingi
svo þú þurfir ekki að velkjast í vafa um næstu skref. Þú færð skýra stefnu og faglega aðstoð sem virkar í raunveruleikanum.

Vikulegir stuðningsfundir á Zoom
svo að þú fáir reglulega hvatningu, svör við spurningum og tengingu við hóp sem skilur þig og styður.

Styðjandi og lokað samfélag
svo að þú verðir ekki ein í breytingarferlinu, heldur hluti af traustum hópi kvenna sem eru að ganga í gegnum það sama og þú.

Hvatning og eftirfylgni, bæði í samfélagi og með tölvupóstum
svo þú fáir reglulegan innblástur, áminningar og styrk til að halda áfram, jafnvel á dögum sem eru erfiðir.

Tól til að byggja upp nýja sjálfsmynd, breyta hugarfari og venjum
svo að þú breytir ekki bara mataræðinu, heldur byggirðu líka upp nýtt samband við líkama þinn og mat

Innblástur fyrir næringarríkar máltíðir
svo það verði auðveldara fyrir þig að velja vel, njóta matarins og finna gleðina í að næra þig

Aðgangur að öllu efni, upptökum af stuðningsfundum og verkefnum á lokuðu samfélagi
svo þú getir skoðað á þeim tíma sem hentar þér best












Allar konur á námskeiðinu fá fræðsluna, stuðningsfundina og samfélagið allar 12 vikurnar. Sumar konur vilja líka hitta fá einkaviðtöl og fá endurgjöf á það sem þær borða, og þess vegna er Alla leið í boði sem viðbót.
Í Alla leið hittir þú mig tvisvar í einkaviðtali og ég fer þrisvar yfir matardagbókina þína. Plássin eru aðeins 10.












Allar konur á námskeiðinu fá fræðsluna, stuðningsfundina og samfélagið allar 12 vikurnar. Sumar konur vilja líka hitta fá einkaviðtöl og fá endurgjöf á það sem þær borða, og þess vegna er Alla leið í boði sem viðbót.
Í Alla leið hittir þú mig tvisvar í einkaviðtali og ég fer þrisvar yfir matardagbókina þína. Plássin eru aðeins 10.

#1: Næringarráðgjöf (50 mín)
(gildir til 2.september kl. 22:00)
Persónuleg byrjun á þínu nýja upphafi.
Þú færð aðstoð og speglun frá næringarfræðingi, greiningu á þínu máltíðarmynstri, hugarfari og markmiðum. Og við finnum þín fyrstu, mikilvægustu skref sem styðja þig að ná árangri sem endist svo að þú byrjir örugg með ramma og plan sem passar nákvæmlega fyrir þig.
ATHUGIÐ: Þessi bónus fylgir með einungis fyrir þær sem skrá sig fyrir kl. 22:00 þann 2.september.
Virði: 19.900 kr.

#1: Viku matarprógram
Almennt viku matarprógram með innihaldslýsingum og leiðbeiningum sem gefa þér hugmyndir af máltíðum og næringu sem styður þig. Prógramið er hannað fyrir meðalkonu með það markmið að léttast og inniheldur næringarríkar hugmyndir sem styðja við orku og jafnvægi.
Afhendist við skráningu
Virði: 5.997 kr.

#2: Matarprógram í hverri viku (8 vikur)
Þú færð nýtt matarprógram í hverri viku allan námskeiðstímann, með innihaldslýsingum og leiðbeiningum.
Prógrömmin eru hönnuð fyrir meðalkonu sem hefur það markmið að léttast á heilbrigðan hátt. Þau eru hugmyndabanki en ekki endilega plan sem þú þarft að fylgja. Þú tekur það sem hentar þér og sleppir hinu.
Þannig færðu nýjar hugmyndir í hverri viku í stað þess að festast í sömu fimm máltíðunum, og þú sérð um leið hvernig næringarrík máltíð er sett saman.
Virði: 24.997 kr.

#3: Leiðarvísir að innihaldslýsingum
Leiðarvísirinn styður þig að taka upplýstar ákvarðanir og treysta sjálfri þér þegar kemur að fæðuvali. Þú lærir hvað skiptir raunverulega máli þegar þú lest innihaldslýsingar og hvernig greina á næringarríkar vörur frá þeim sem líta bara vel út.
Afhendist við skráningu
Virði: 3.997 kr.

#4: Lokabónus: Máltíðarskipulag
Máltíðarskipulag sem virkar: Vinnubók sem hjálpar þér að einfalda máltíðir, losna við streitu í kringum "hvað á ég að borða?" og skapa ramma sem styður orku og jafnvægi

#4: Byrjun sem endist
Byrjun sem endist er 3 þátta inngangssería sem hjálpar þér að byrja námskeiðið af meiri ró og skýrleika.
Hún snýst um hvernig þú byrjar, hvernig þú velur þig í verki og hvernig þú nýtir námskeiðið sem best.
Serían gefur þér rými til að stilla þig inn á ferlið áður en námskeiðið hefst og byggja grunn sem hjálpar nýjum venjum að festast.
ATHUGIÐ: Þessi bónus fylgir eingöngu með þegar námskeiðið er greitt að fullu við skráningu.
Allir bónusar fylgja báðum útgáfum námskeiðsins.
Hægt er að greiða með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu (MyPOS) og einnig er í boði að skipta greiðslunni í 3 greiðslur, við skráningu, 1.febrúar og 1.mars.
| Þitt nýja upphaf | Alla leiðÞitt nýja upphaf | |
|---|---|---|
| Fyrirlestrar og verkefni | 12 vikur | 12 vikur |
| Vikulegir stuðningsfundir | 12 | 12 |
| Dagsetningar | 11.jan - 4.apr 2027 | 11.jan - 4.apr 2027 |
| Lokað samfélag | ✓ | ✓ |
| Allir bónusar | ✓ | ✓ |
| Einkaviðtöl með Hrund (50 mín) | – | 2 |
| Yfirferð á matardagbók | – | 3 vikur |
| Aðgangur að efni | til 11.júlí | til 11.júlí |
12 vikur
99.997 kr.
eða 3 × 36.700 kr.
12 vikur
124.997 kr.
eða 3 × 45.800 kr.
Gott að vita:
1) Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta af kostnaði við námskeiðið, athugaðu með þitt stéttarfélag.
2) Ef það hentar þér betur að millifæra en að greiða með greiðslukorti, sendu mér þá tölvupóst: [email protected]
Þú þarft ekki að gera þetta ein.
Þú færð stuðning og hvatningu allan tímann, svo þú festist ekki eða gefist upp.
Þetta er það sem þú getur treyst á:
Vikulegir hópfundir á Zoom þar sem þú færð fræðslu, svör við spurningum og hvatningu
Hópur á lokuðu vefsvæði þar sem þú færð daglegan stuðning og svör frá mér
Reglubundin verkefni og eftirfylgni sem hjálpa þér að taka næstu skref
Aðgengi að mér sem leiðbeinanda, ég er með þér í þessu!
Markmiðið er að þú finnir að þú sért ekki ein, þetta er þitt rými til að læra, vaxa og finna jafnvægi sem endist.
Ég mæli með að þú takir frá ~2-3 klst. á viku í heildina til að hlusta á efnið, mæta á stuðningsfundi, gera verkefni og innleiða þau. En þú getur líka aðlagað þetta að þínum hraða.
Nei, alls ekki. Þetta námskeið byggir á heilbrigðri nálgun án öfga. Við vinnum með jafnvægi, orku og tengingu við líkamann þinn.
Nei, það er ekki þörf á því. Þú þarft hvorki að vigta mat né skrá allt sem þú borðar frekar en þú vilt. Það er meiri áhersla á að þú lærir að hlusta á eigin líkama, þróir með þér heilbrigð og sjálfbær mynstur í kringum mat og næringu, án þess að þurfa að vera með strangt utanumhald.
Já algjörlega, við snertum á næringu, hreyfingu og líðan á breytingaskeiði, og hvernig þú getur stutt líkama þinn á þessum tíma.
Ef þú hefur áður reynt að breyta og misst móðinn, þá er þetta námskeið fyrir þig. Þetta er ekki skyndilausn, heldur upphaf nýrrar útgáfu af þér. Ef þú ert tilbúin að skuldbinda þig, þá er ég hér til að styðja þig alla leið.
Þú færð fræðslu, stuðning og aðferðir sem hjálpa þér að byggja upp nýtt kerfi sem endist með raunhæfum og mælanlegum skrefum.
Já! Þó þetta sé hópnámskeið, þá færðu reglulegt tækifæri til að fá svör við þínum spurningum vikulegum fundum. Auk þess er ég virk daglega á vefsvæðinu okkar og fylgi þér þar eftir, þannig að þú færð leiðsögn, stuðning og hvatningu sem hentar þér og þínum aðstæðum.
Fundirnir eru einu sinni í viku á Zoom og eru teknir upp. Þú getur því horft á upptöku ef þú kemst ekki í beinni. Mikilvægast er að þú fylgir efninu á þínum hraða og notar þann stuðning sem þú þarft. Tímasetning fundanna verður ákveðin í samráð við allar konur í hópnum í upphafi námskeiðsins.
Þetta námskeið er sérstaklega hannað fyrir konur sem eru að byrja eða byrja aftur. Þú þarft ekki að vera með þekkingu á næringu eða hreyfingu fyrirfram. Þú lærir það sem þú þarft, skref fyrir skref.
Sumar konur léttast um 5 til 6 kg á 8 vikum, aðrar um 2 kg og einstaka léttist lítið sem ekkert. En þyngdin er ekki eini mælikvarðinn og oft ekki sá sem skiptir mestu. Konur á námskeiðinu hafa sofið betur, fengið jafnari orku og séð breytingar í cm þótt vigtin hreyfist hægt. Þess vegna mæli ég með að þú takir mál í upphafi, ekki bara þyngd.
Allar 12 vikurnar eru nákvæmlega þær sömu og þið eruð allar saman í þeim, á fundunum og í samfélaginu. Í Alla leið hittir þú mig líka tvisvar í einkaviðtali og ég fer þrisvar yfir matardagbókina þína.
Það fyrsta er í fyrstu vikunni og það síðara undir lok námskeiðsins. Skráir þú þig innan sólarhrings færðu þriðja viðtalið um miðbik námskeiðsins.
Þú hefur aðgang að öllu efni námskeiðsins í 6 mánuði eftir að það hefst, þannig að þú getur farið yfir efnið aftur ef þú vilt styrkja nýjar venjur enn frekar.
Já! Flest stéttarfélög niðurgreiða þátttöku. Hafðu samband við þitt félag og sendu kvittunina sem þú færð eftir skráningu.
Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslusíðu og þú færð staðfestingu í tölvupósti með öllum upplýsingum.
Ef það hentar þér betur að millifæra, þá geturðu sent á mig tölvupóst [email protected] og ég mun senda þér nánari upplýsingar.
Námskeiðið stendur yfir 11.janúar - 4.apríl 2027.
©Höfundaréttur 2026 Hrund Valgeirsdóttir
Næring & Ráðgjöf slf.
Allur réttur áskilinn