
Gerir þú sömu nýársheitin á hverju ári að ætla að léttast en svo tekst það aldrei? Þá mun þessi vinnustofa breyta öllu fyrir þig.
Þú ert uppgefin á þessu og kennir sjálfri þér um.
En þú ert ekki ein og þetta er ekki þér að kenna.
Þú þarft ekki fleiri áramótaheit eða nýjan megrunarkúr. Þú þarft nýja leið.
Vertu með mér á ókeypis vinnustofunni Veldu þig á nýju ári þann 30.desember. Þar sem við ætlum að endurhlaða líkama og huga og gera 2026 að besta árinu þínu.


Þú byrjar janúar full af ásetningi og ætlar að snúa blaðinu við, borða hollara, hreyfa þig meira, léttast, sofa betur og loksins finna þitt jafnvægi. En svo líða nokkrar vikur og þú gefst upp, finnur vonbrigðin og hugsar: “Af hverju næ ég þessu aldrei?”
Flestar konur hafa verið í þessum vítahring: að byrja aftur og aftur með nýja áætlun á nýju ári eða í nýrri viku… en ná aldrei langtímaárangri. Það er ekki vegna þess að þær skortir aga eða viljastyrk. Það er vegna þess að viljastyrkur virkar ekki til lengdar.
Það sem þú þarft er ekki meiri agi, heldur meira jafnvægi, trú á sjálfa þig og skilning á eigin líkama. Að læra að taka ákvarðanir um mat og heilsu út frá sjálfsumhyggju, ekki pressu.
Á vinnustofunni Veldu þig á nýju ári förum við dýpra í þetta, af hverju megrun og viljastyrkur halda þér fastri í hringrás, og hvað er betri leið til að skapa raunverulegan, varanlegan árangur.
Skapa skýra sýn fyrir konuna sem þú vilt verða svo að 2026 verði besta árið þitt
Búa til raunhæfa áætlun svo að þú náir markmiðum þínum
Kveikja innri trú að þú getir skapað breytingu sem endist
Þú munt fara út úr vinnustofunni með léttari orku, nýjan fókus og raunverulega trú á að þetta ár verði öðruvísi.
Þetta er ekki hefðbundin nýársvinnustofa með markmiðasetningu. Þetta er endurstilling fyrir líkama og huga, tækifæri til að hætta að endurtaka gömlu mynstrin og byrja að velja þig með skýrleika, styrk og sjálfsumhyggju.
Þetta er stund til að staldra við, hugsa og fá skýra stefnu fyrir árið framundan.
📅 Hvenær: 30. desember, 2025
🕐 Tímasetningar: kl. 12:00-14:00 eða 18:00-20:00
💻 Staðsetning: Zoom
💰 Kostnaður: Ókeypis
🎁 Upptaka: Allar sem skrá sig fá upptöku senda daginn eftir sem verður opin í eina viku, svo þú getir notið efnisins þegar þér hentar.
Eru þreyttar á að byrja hvern janúar með pressu á sjálfar sig að gera allt fullkomið í þetta sinn.
Hafa reynt margar leiðir eru sífelt að byrja uppá nýtt en enda alltaf á sama stað, fullar af vonbrigðum.
Langar að léttast án þess að fórna öllu eða lifa eftir stífum reglum með sektarkennd.
Vilja ná meira jafnvægi í kringum mat án þess að fara eftir stífu plani.
Ég heiti Hrund og er næringarfræðingur sem brennur fyrir því að styðja konur við að finna jafnvægi í kringum mat og styrkja trú á eigin getu.
Ég veit hversu auðvelt það er að setja sig á “bið” fram að nýju ári, í þeirri von að þá verði allt auðveldara. Í dag hjálpa ég konum að ná stjórn, skapa heilbrigðari tengsl við mat og byggja upp lífstíl sem endist allt árið. Ég veit að varanlegar breytingar gerast ekki með megrunarkúrum eða hörku, heldur með stuðningi, einföldum skrefum og innri umbreytingu.
Ég skapaði þessa vinnustofu til að hjálpa þér að ljúka árinu með friði og byrja nýtt ár með fókus og sjálfstrausti.
Þú þarft ekki að gera þetta ein. Komdu með mér á vinnustofuna Veldu þig á nýju ári og fáðu meiri fókus og skýrari sýn fyrir næsta ár.

Flestir bíða til 1. janúar til að „byrja upp á nýtt“ en þú getur byrjað fyrr.
Þú mætir nýja árinu með fókus, orku og áætlun á meðan aðrir eru enn að reyna að finna taktinn og komast í gang.
Taktu þessa ákvörðun í dag fyrir sjálfa þig, þannig að þegar árið 2026 rennur upp, þá veistu hvert þú ert að stefna í stað þess að byrja frá grunni.
Gefðu þér þessa stund 30.desember til að stilla inn á það sem raunverulega skiptir máli!
Sjáumst á Zoom.
©Höfundaréttur 2025 Hrund Valgeirsdóttir
Næring & Ráðgjöf
Allur réttur áskilinn