Við byrjum eftir:

Ertu komin með nóg af því að byrja aftur og aftur að "taka þig á" í kringum mat og heilsu?

Þig langar að líða léttari í líkamanum, hafa meiri orku og finna jafnvægi í kringum mat, en þú ert þreytt á öfgum og lausnum sem endast bara í nokkrar vikur.

Þú þarft ekki fleiri reglur, megrun eða átak.

Þú þarft rými til að skilja hvað raunverulega styður þig.

Tveggja kvölda ókeypis vinnustofan Veldu þig í vor er fyrir konur sem vilja taka fyrstu skrefin að lífsstíl sem endist og fara inn í vorið með meiri skýrleika og festu.

Þetta er fyrir þig ef þú...

  • Vilt léttast eða líða léttari án þess að fórna öllu öðru

  • Vilt byrja vorið með skýrari fókus, ekki nýrri pressu

  • Hefur reynt margar leiðir en endar alltaf á sama stað full af vonbrigðum og sjálfsásökunum

  • Vilt ná árangri með stuðningi og raunhæfum venjum sem endast

Hvað þessi vinnustofa gefur þér:

  • Skýrari sýn fyrir vorið og sumarið svo þú vitir hvert þú ert að stefna

  • Raunhæf næstu skref sem passa inn í lífið þitt svo breytingarnar verði eitthvað sem þú getur haldið, ekki bara byrjað

  • Nýtt sjónarhorn á lífsstílsbreytingar svo þú hættir að upplifa þig sem vandamálið og byrjir að skilja hvað raunverulega styður þig

  • Meiri trú á sjálfa þig svo þú getir haldið áfram líka þegar hlutirnir eru ekki fullkomnir

Þetta er rými til að staldra við, skilja hvað hefur verið að stoppa þig og finna leið sem passar lífinu sem þú lifir í raun og veru.

 

Þú ferð út með meiri nýjan fókus og raunverulega tilfinningu fyrir því að breyting sé möguleg.

Nánari upplýsingar:

📅 Hvenær: 24. og 25. mars 2026
🕔
Tími: kl. 18:00-19:30
💻
Staður: Zoom (webinar)
🎁
Bónus: Gjöf ef þú mætir "í beinni" á Zoom bæði kvöldin

🎥 Upptökur: Aðgengilegar í takmarkaðan tíma í lokuðum Facebook hóp

Lokaður Facebook hópur þar sem þú getur tengst öðrum konum og deilt.

Kvöld 1:

Skýrleiki, innri fókus og vorið framundan

Þú hægir á, skoðar hvar þú ert stödd og hvernig þig langar að líða næstu mánuði.

Þú ferð út með skýrari stefnu og tilfinningu fyrir því hvert þú ert að fara.

Kvöld 2:

Framkvæmd og stöðugleiki
Þú mótar skýr næstu skref og færð nýtt sjónarhorn á bakslag. Þú færð skilning af hverju "allt eða ekkert" tekur yfir og hvernig þú getur valið að halda áfram án þess að hætta.

Þú ferð út með raunhæf skref og meiri trú á að þú getir haldið áfram.

Hver leiðir vinnustofuna?

Ég heiti Hrund og er næringarfræðingur og vinn með konum sem eru orðnar þreyttar á að byrja aftur og aftur, konum sem vilja líða betur í líkamanum án öfga, án sektarkenndar og án þess að berjast við sjálfar sig.

 

Í starfi mínu hef ég séð eitt aftur og aftur:

Það er ekki skortur á vilja eða metnaði sem heldur konum föstum. Það er skortur á raunhæfum ramma, og stuðningi sem passar inn í lífið eins og það er.

Ég vinn ekki með megrun, „allt eða ekkert“ hugsun eða lausnir sem endast í nokkrar vikur.

Ég vinn með innri skýrleika, einföld skref og ferli sem hægt er að halda áfram með, líka þegar lífið er ekki fullkomið.

 

Ég skapaði þessa vinnustofu til að gefa þér rými til að:

staldra við, stilla fókus og velja næstu skref inn í vorið með meiri ró og sjálfsvirðingu.

Þú þarft ekki að gera þetta ein.

Ég held utan um ferlið, og þú mætir eins og þú ert.

Ertu tilbúin að staldra við, stilla fókusinn og stíga þín fyrstu raunhæfu skref í vor?

Þú mætir sumrinu léttari, með meiri ró, skýrleika og sjálfstraust í kringum líkama, mat og sjálfa þig.

Með því að mæta á vinnustofurnar velurðu skýrleika fram yfir ringulreið og mildi fram yfir hörku.

Gefðu þér þessi tvö kvöld, bara fyrir þig.

Sjáumst á Zoom!

©Höfundaréttur 2025 Hrund Valgeirsdóttir

Næring & Ráðgjöf

Allur réttur áskilinn